mánudagur, apríl 09, 2007

-Vér höfum flutt-

Þessi síða hefur verið flutt.

Bara smella, svo kemur það.

Kveðja, Silli & Valdi.

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

-Vorboðinn ljúfi-
Það er alltaf skýrt merki um að vorið sé á næsta leiti þegar Knattspyrnufélagið Kóngarnir hefur undirbúningstímabil sitt.
Í gærkvöldi var sem sagt fyrsti æfingaleikurinn á tímabilinu, og það er óhætt að segja að það þarf mikið að gerast til að maður komist í sæmilegt form.
Þó náði ég að spila vel rúmlega hálfan leikinn sem ég tel býsna gott, og spilaði auk þess þrjár stöður, hægri bakvörð, miðvörð og framherja...ekki amalegt afrek það...ekki það að ég hafi gert mikið af viti í leiknum samt.
En leikurinn tapaðist sem sagt 2-3, eftir að Kóngarnir höfðu haft frumkvæðið lengi framan af leik, en skortur á úthaldsleysisvöntun varð okkur að falli í lokin.

Svo á morgun gerist það sem allir hafa beðið eftir síðustu mánuði. Ég, Jói, Ingvar og G. Hörður förum í heimsreisu til Englands og förum á stórtónleika með Dave Matthews á föstudaginn, og svo á Liverpool leik á laugardaginn. Þetta verður án nokkurs vafa hin mesta snilldarferð, og verðum við vafalaust landi og þjóð, og þá sérstaklega Hafnarfirði til sóma.
En ég hringi síðar.

Góðar stundir.

mánudagur, janúar 22, 2007

-It was the best of times, it was the worst of times-
Einhver breskur sálfræðingur hefur "reiknað" það út að dagurinn í dag sé versti dagur ársins.
"Í útreikningum sínum tekur hann það m.a. með í reikninginn að á þessum árstíma hafi fólk hvað mestar fjárhagsáhyggjur vegna umframeyðslu í kring um jólin. Þá segir hann fólk þjást af sektarkennd vegna nýársheita sem þegar séu farin í vaskinn, auk þess sem vinnuþreyta, myrkur og erfitt veðurfar dragi fólk niður."[1]
Strax í kjölfarið á versta deginum kemur svo besti dagur ársins, en á morgun er einmitt 23. janúar, en á þeim degi hófst hið sögufræga eldgos í Vestmannaeyjum...og samkvæmt kirkjubókum Hafnarfjarðar þá ku þetta vera fæðingardagur undirritaðs. Blóm og kransar eru afþakkaðir.
Þrátt fyrir að árin færist yfir þá er ég góður til heilsunnar og allur hinn sprækasti, en verð að heiman á afmælisdaginn.

Góðar stundir.

Heimildir: [1] mbl.is: 19. janúar 2007.
-Handboltafár!-
Eins og flestir ættu að vita geisar handboltafár um gjörvalla heimsbyggðina. Fólk hvaðanæva að sameinast í ást sinni á hinni fögru íþrótt þar sem hrindingar og fantabrögð eru í hávegum höfð.
Líkt og undanfarin ár þá hefur hin stórgóða handboltasíða handbolti.blogspot.com verið endurvakin, hvar hinn skeleggi fréttaritari Jón Andri Finnson skrifar greinargóða pistla og lýsir því sem fyrir augu ber á mótinu. Mæli ég eindregið með þessari lesningu.

Góðar handboltastundir.

laugardagur, janúar 20, 2007

-Aftur og nýbúinn-
Ég hefi ákveðið að taka aðeins til í linkasafninu hér til hliðar. Ýmsum letingjabloggurum var hent út og öðrum bætt við. Þeir sem hafa bæst við eru hinir ágætu drengir Hlynur Sigurðsson fasteignabraskari og Stefán Freyr stærðfræðingur.
Eru þeim hér með færðar hamingjuóskir af þessu tilefni.

Þess ber svo að geta í framhjáhlaupi að Besta lið í heimi rúllaði upp núverandi Englandsmeisturum í fótbolta í dag. Það var allt annað en leiðinlegt. Nú er fátt sem getur komið í veg fyrir að við stöndum uppi sem sigurvegarar í vor.

Fyrsta undankeppniskvöldið fyrir Eurovison var í kvöld eins og flestir ættu væntanlega að vita. Lögin í keppninni í ár eru svo léleg að ég gæti best trúað því að ákveðið verði að senda ekkert lag út í þetta skiptið. Og bæ ðe vei, veit einhver af hverju Guðmundur í Byrginu tók þátt í keppninni í kvöld?
Nú fæ ég pottþétt böns af heimsóknum á síðuna, enda hlýtur Guðmundur í Byrginu að vera með vinsælustu leitarorðum netsins í dag...kannski maður ætti að bæta við orðinu myndband eða myndbandið til að gulltryggja sig.

Búið í bili

Góðar stundir.

fimmtudagur, janúar 18, 2007

-Hér sé blogg-
Þeir sem héldu að þetta blogg væri dautt hafa býsna rangt fyrir sér í þeim efnum. Undanfarið hefur verið unnið í mörkunarvinnu fyrir síðuna, og hefur hún engu skilað og því ákveðið að best væri að halda bara áfram þar sem frá var horfið.

Fyrir fróðleiksþyrsta þá upplýsist það hér með að þær breytingar hafa orðið á mínum högum að ég er fluttur aftur í Hafnarfjörðinn góða, enda fjárfesti ég í snoturri íbúð í hjarta bæjarins í hrauninu. Varla hafði ég lokið við að breyta skráningu minni í þjóðskrá þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar hafði samband og vildi fá mig til að flytja fyrirlestur í febrúar um sögu kvikmyndasýninga í Hafnarfirði. Verður það þar með mitt fyrsta gigg sem sagnfræðingur...which is nice.

Svo í næstu viku, nánar tiltekið þann 23. janúar, verða 34 ár liðin frá upphafi eldgossins í Vestmannaeyjum, og ætli því verði ekki fagnað með miklu húllumhæi.

Sökum þess hvað bloggið hefur verið stopult undanfarið þá fá áskrifendur janúarmánuð frían.

Góðar stundir.

sunnudagur, desember 10, 2006

-Stöðutékk-
Til að halda mínum dyggu lesendum ánægðum og við efnið, þá ætla ég að birta hérna smá blogg núna...en von er á stærra bloggi von bráðar sem verður fullt af fánýtum fróðleik.
En hérna fáið þið lesendur góðir smá aðventugjöf frá mér. Hún á rætur sínar að rekja til Þýskalands, en um er að ræða eitt allra besta popplag sem Þjóðverjar hafa búið til...og skipar sér í flokk með lögum á borð við Ein bisschen frieden, Lass die sonne in dein hertz og Hü a ho, alter schimmel.
Góðir lesendur, ég færi ykkur stórhljómsveitina Münchener freiheit, og lagið er að sjálfsögðu Keeping the dream alive...epískt meistaraverk.



Góðar stundir.

föstudagur, nóvember 17, 2006

-Ég hlakka svo til-
Eftir rétt rúma þrjá mánuði verð ég staddur í Newcastle á Englandi á tónleikum með þessum manni (sjá mynd 1):


Mynd 1. Dave Matthews

Þessi maður er sem sagt enginn annar en sjálfur Dave Matthews, forsprakki hinnar stórgóðu hljómsveitar Dave Matthews Band. Það hefur lengi staðið til að sjá kappann á sviði, og nú hyllir loks undir að það verði að veruleika. Þetta er svo sannarlega gleðidagur. Svo verður í kjölfarið farið á Anfield og horft á eins og einn leik með Liverpool liðinu. Þetta verður án nokkurs vafa snilldarferð.

Góðar stundir.
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com