-Plötukynning-
Þökk sé inter-netinu þá var ég að eignast nýjustu afurð írska gítarskáldsins Damien Rice. Platan heitir 9 og fylgir í kjölfar hinnar geysigóðu O, sem kom út fyrir nokkrum árum...nafngiftin ekki að vefjast fyrir stráknum.
Nýja platan hljómar bara helvíti vel við fyrstu hlustun, og eru lögin Elephant og Rootless tree afburðalög svona eftir fyrstu yfirferð.
Mæli ég með þessari afurð við alla unnendur góðrar tónlistar, og er hún vafalítið til í öllum betri hljómplötuverslunum...svona fyrir þá sem ennþá stunda hina fornu list að kaupa tónlist.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home