-Tíðindi af vesturvígstöðvunum-
Ég verð að segja það að ég er frekar feginn því að vera ekki áskrifandi að þessu bloggi...frekar lítið sem maður fær fyrir peningana á þessum stað um þessar mundir.
Minn dyggi lesandi er m.a.s. farin að kvarta, og þá er eins gott að láta hendur standa fram úr ermum, hysja upp um sig sokkana, bíta í skjaldarrendur, taka af skarið og láta einskis ófreistað...og setja saman eitthvað sem kalla mætti blogg.
Fyrir áhugasama þá hafa síðustu dagar farið að mestu í að útskrifast úr Háskólanum, vinna, sækja um nýja vinnu hjá Þjóðminjasafninu....og það sem ég geri best, drekka bjór.
Fór reyndar á Airwaves um daginn og fékk að berja eina af mínum helstu helstu hetjum innan tónlistargeirans augum. Þar er ég að sjálfsögðu að tala um sjálfan Erlend Öye, einhverja mestu hetju sem Noregur hefur getið af sér, og þá tel ég að sjálfsögðu með þá Morten Harket og Björn Tore Kvarme. Drengurinn kom hingað ásamt sínu nýja bandi, Whitest Boy Alive, og það voru einhverjir mögnuðust tónleikar sem ég hefi séð lengi lengi.
Að öðru leyti er ég bara þokkalega sprækur. Vona að þetta hafi glatt þig Freyja!
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home