föstudagur, júní 30, 2006

-Aðgerðarlaus-
Löngu kominn tími á blogg. Ekki það að ég hafi setið aðgerðarlaus síðustu vikur, heldur fór ég einmitt í aðgerð á þriðjudaginn síðasta. Eftir langa bið var ganglionið loks fjarlægt úr úlnliðnum á mér, og sit ég því þessa dagana heima með höndina í gifsi og reyni að vinna í ritgerðinni minni...og horfa smá á fótbolta, enda Þjóðverjar að gera ansi gott mót á HM.

Af þessu tilefni hefi ég ákveðið að skella hér inn poppgetraun, enda langt síðan slík gersemi hefur borið á fjörur lesenda. Verðlaunin eru sem fyrr einn ískaldur bjór.

Spurt er: Hvað eiga eftirfarandi lög sameiginlegt?
I´m not in love - 10cc
Just the way you are - Billy Joel
Star me kitten - REM

Ég held að þetta sé temmilega þungt í þetta skiptið.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com