föstudagur, maí 05, 2006

-Kosningar ´06-
Eftir nákvæmlega tvær vikur er förinni heitið til Þýskalands, nánar tiltekið til suðurhluta landsins með smá viðkomu í Austurríki. Verðum við hjúin þar í góðu yfirlæti í tvær vikur (þ. zwei wochen). Verður það án nokkurs vafa eine sehr gute reise, og mikil tilhlökkun í mannskapnum.
Af þessum sökum verð ég því ekki á landinu þegar gengið verður til sveitastjórnakosninga í lok mánaðarins. Brá ég því á það ráð að skreppa til sýslumanns í gær og greiddi atkvæði utankjörfundar. Það er miklu meiri seremónía heldur en við hefðbundna atkvæðagreiðslu. Ýmsir pappírar og plögg sem þarf að skrifa undir og mikið fjör. Hyggst ég því gera þetta í framtíðinni að kjósa utankjörfundar, maður fær að nota sérstakan stimpil til að greiða atkvæði til að mynda.

Annars hef ég sama og ekkert sett mig inn í kosningabaráttuna hérna í Kópavogi, enda svo sem ekkert sérlega áhugasamur um vöxt og velferð þessa bæjarfélags, fylgist allavega mun betur með því sem er að gerast í Hafnarfirði. Hélt mig því bara við hefðina þegar ég kaus í gær og kaus rétt. Nú þarf ég bara helst að halda kosningavöku í kvöld, til að hafa þetta alvöru.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com