-Síðasti bjórinn-
Í tilefni þess að í dag er 1.mars, sjálfur bjórdagurinn, þá leyfi ég mér að endurprenta litla frétt sem ég rakst á í Morgunblaðinu frá föstudeginum 13.mars 1914.
Stórfrétt:
Síðasti bjórinn var seldur í gær á Hotel Reykjavík. Drakk hann einn heldri maður þessa bæjar - maður, sem í mörg ár hefir verið bindindismaður á alla áfenga drykki, nema bjór. Hann studdi bannlögin og gerir það ef til vill enn, þ.e.a.s vill láta banna að flytja whisky og brennivín inn í landið en leyfa fólki það að fá sér einn bjór við og við. En nú er bærinn með öllu bjórlaus - hvað svo sem er í boði.
Hvílíkir hörmungartímar. En til hamingju með daginn bjórunnendur.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home