-Þættinum hefur borist bréf-
Einn af aðdáendum síðunnar, Jóhann að nafni, hefur sent inn ansi áhugaverða tónlistargetraun, og hvet ég alla til að reyna sig við þessa. Gjörið svo vel, og góðar stundir.
Alvöru tónlistargetraun. Ég legg bjór undir rétt svör
Spurt er um tónlistarmann :
Hann er fæddur í Skotlandi um miðja síðustu öld. Faðir hans var
rafeindavirki eins og það skipti einhverju máli. En hann hóf tónlistarferil
sinn ungur og stofnaði ásamt skólafélögum sínum “ hina sjálfhverfu “ sem
var undanfari þeirrar sveitar sem átti eftir að gera hann heimsfrægan. 1988
gaf bandið út sína síðustu hljómsveitarplötu af tólf og gaf endanlega upp
öndina þremur árum síðar. Hljómsveitinni tókst á ferli sínum að hljóðrita
ýmsar tónlistarstefnur, allt frá tilraunakenndu funki til einfaldra
melódískra popplaga. En okkar maður var nú aldrei við eina fjölina felldur
í tónlistinni og vann með hinum og þessum tónlistarmönnum auk þess að semja
tónlist fyrir leikhús og bíómyndir og einnig vann hann eitthvað við
heimildamyndagerð. Eftir að bandið gaf upp öndina einbeitti hann sér að
eigin ferli af miklum krafti og gaf út að minnsta kosti 15 sólóplötur.
Honum hefur verið líkt við bæði Harrison og Hitchcock og að hann hafi verið
undir áhrifum frá Bowie og James Brown, eins og reyndar ansi margir aðrir
tónlistarmenn.
1. Hver er maðurinn ?
2. Hver er hljómsveitin ?
3. Hvert er gælunafn eiginkonu hans ?
4. Hvenær kom hann til Íslands og í hvaða tilgangi ?
Fullkomið svar gefur 10 stig.
Gangi ykkur vel.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home