mánudagur, janúar 23, 2006

-Í tilefni dagsins-
Það var á þessum degi, 23. janúar 1973, sem íbúar Vestmannaeyja vöknuðu upp með andfælum við það að gos var hafið á eyjunni. Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa, enda gosið óþægilega nærri byggð, og sýnt þótti að hraunið myndi renna beint yfir bæinn.
Daginn áður hafði gengið yfir stórviðri af suðaustri með 12 vindstigum og rigningu. Af þeim sökum var allur bátafloti Eyjamanna í höfn, sem var mikið lán, því mun greiðlegar gekk að ferja íbúa eyjunnar til lands en ef aðstæður hefðu verið aðrar. Þar að auki bættust við skip landhelgisgæslunnar, en þau neyddust til að taka sér frí frá gæslu á miðunum, en á þessum tímapunkti stóð annað þorskastríðið yfir, og mikil spenna var á miðunum á þessum tíma.

Að morgni þriðjudagsins 23. janúar var því búið að flytja langstærstan hluta íbúanna til lands, og þar með forða þeim frá þeirri hættu sem steðjaði að.

Þann 3.júlí var svo tilkynnt að gosinu væri lokið, en þá hafði það staðið yfir í fimm mánuði og tíu dag, og eyðilagt um 30% húsa í bænum.

Þannig mun 23. janúar standa lengi í minnum íbúa Vestmannaeyja, og enn má sjá hinar hrikalegu afleiðingar gossins á eyjunni.

...já, og svo á ég afmæli í dag.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com