-Nýtt ár-
Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur og aðdáendur þessa litla bloggs. Eins og glöggir aðilar sjá hefur síðan tekið gífurlegum stakkaskiptum, hinar mestu breytingar sem gerðar hafa verið á síðunni síðan henni var varpað í loftið í öndverðum nóvember mánuði árið 2002 (skemmtiliegt hvað orðið "síðan" getur gegnt mismunandi merkingarhlutverki).
Vona ég að breytingar þessar falli lesendum vel í geð, enda hafa forritarar síðunnar unnið nótt sem dag undanfarnar vikur við hið nýja útlit. Auk þess höfum við fengið til liðs við okkur einhverja færustu Feng Shui sérfræðinga landsins við hönnun síðunnar, svo nú ætti jafnvægi og eining að ríkja á síðunni, sem ætti að auðvelda lestur hennar (þegar svo ber við að eitthvað er skrifað hérna inn).
Annars segi ég bara enn og aftur gleðilegt nýtt ár, og til hamingju með nýja útlitið.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home