-Afmæli-

Það láðist víst að geta þess að þann 5. nóvember síðastliðinn, varð þetta litla blogg þriggja ára gamalt. Víst hefur maður marga fjöruna sopið á þessum tíma, en alltaf hefur þörfin fyrir að rita eitthvað hingað inn, sama hversu ómerkilegt og lítilfjörlegt sem það hefur verið, verið fyrir hendi. Reyndar hefur tíðni bloggfærslna lækkað með tímanum, en með hækkandi sól og betri tíð rætist vonandi úr því. Við hér á síðunni horfum allavega vongóð til framtíðar og hlökkum til að takast á við ný og krefjandi verkefni. (Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvað ég er að tala, en þetta hljómar allavega alveg ágætlega.)
Með von um að blogg þetta megi lifa um aldur og ævi, sendir ritstjórnin sínar beztu kveðjur.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home