miðvikudagur, nóvember 02, 2005

-Sorgartíðindi-
Aðeins örfáum dögum eftir að ég dásamaði nýju plötu hinnar stórgóðu sveitar Alfie, Crying at teatime, hafa drengirnir ákveðið að leggja upp laupana. Að sögn eru þeir orðnir þreyttir á harkinu í Englandi, og því hve hægt gengur að koma bandinu almennilega til eyrna fjöldans. Þetta þykir mér mjög sorglegt, enda finnst mér nýja platan þeirra (og sú síðasta) alveg hreint mögnuð, og á allt gott skilið. En svona gengur þetta víst fyrir sig...og svo ég vitni í meistara John Lennon:

"It´s only a rock group that split up. It´s nothing important. You have all the old records there if you want to reminisce."

...þá í sjálfu sér skiptir þetta engu máli. En ég varð eilítið dapur þegar ég sá þessi tíðindi.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com