þriðjudagur, október 04, 2005

-Nýr dagur-
Í morgun reis nýr dagur. Dagur sem búið var að gera ákveðnar væntingar til. En eins og svo oft gerist þegar menn búa sér til væntingar, vilja þeim oft fylgja vonbrigði.
Hér var búið að lofa pistli hvar reka átti ferðasögu um fyrirhugaða ferð mína með strætó, líkt og ég hafði ritað í pistli í gær. En skjótt skipast veður í lofti, því um það leyti sem ég ætlaði að ganga til náða í gærkvöldi hringdi síminn minn. Á hinum enda línunnar var maðurinn sem ég hafði treyst fyrir því vandasama verkefni að koma bílnum mínum í lag, og tjáði hann mér að bíllinn væri barasta kominn í gang og að hann væri bara á leiðinni til mín að skila mér bílnum. Ég átti ekki orð til að lýsa hrifningu minni, enda var ég búinn að sjá fram á einhverja bið eftir bílnum.
Af þessum orsökum var engin strætóferð farin í morgun, og því get ég ómögulega ritað pistil um mína fyrstu strætóferð í háa herrans tíð. Ég hef fullan skilning á vonbrigðum aðdáenda síðunnar, og fá þeir alla mína samúð.
Af bílnum er hins vegar það að frétta, að Bendixinn góði var í fínu lagi, eina sem amaði að bílnum var það að örlítil drulla hafði hlaðist upp í startaranum og var hún hreinsuð burt með hraði, og er bíllinn eins og nýr þegar þetta er ritað...og strætóferðin góða bíður betri tíma.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com