-And now my life has changed in oh so many ways - A-wop-bop-a-loo-bop a-lop bam boom-
Þá er löngu bloggfríi lokið, og mál til komið að hefjast handa við að rita inn á þessa síðu aftur. Eitt og annað hefur á daga mína drifið síðan ég skrifaði síðast, og ber þar einna hæst að við skötuhjúin erum flutt saman í snotra íbúð í suðurhlíðum Kópavogs. Verður að segjast að Kópavogurinn venst furðu fljótt, og er ég kominn á þá skoðun að hverjum manni sé hollt að búa um hríð í þessum bæ...þó ekki væri nema til þess eins að átta sig á því hversu gott það er að búa í Hafnarfirði, enda liggja allir vegir á endanum til Hafnarfjarðar...ég vona að einhver þarna úti skilji hvað ég er að fara.
Hljómsveitin mín hélt löngu tímabæra tónleika á Kaffi Kúltúr á dögunum og tókust þeir betur en flestir þorðu að vona. Húsfyllir var og mikil og góð stemning, og voru hljómsveitarmeðlimir býsna sáttir við kvöldið þegar upp var staðið.
Á mánudaginn hefst svo skólinn aftur af fullum krafti, og verður haldið áfram þar sem frá var horfið með sagnfræðina og auk þess teknir nokkrir kúrsar í fagi því er nefnist íslenska, og er mér nokkuð hjartfólgið. Verður vafalítið hressandi mjög.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home