-Framkvæmdasjóður aldraðra-
Enn eitt árið er ég neyddur til að greiða heilar fimm þúsund krónur í eitthvað sem heitir Framkvæmdasjóður aldraðra. Til að sjá í hvað peningarnir mínir eru að fara, ákvað ég að googla framkvæmdasjóðnum, og niðurstöðurnar voru sláandi...og þó.
Fjármagni úr Framkvæmdasjóði aldraðra skal varið til að styrkja:
1. Byggingu þjónustumiðstöðva og dagvista, sbr. 13. gr., og byggingu stofnana fyrir aldraða, sbr. 14. gr.
2. Nauðsynlegar breytingar og endurbætur á húsnæði sem notað er til þjónustu fyrir aldraða.
3. Sveitarfélög og heilsugæslustöðvar til að þróa skipulagða heimaþjónustu fyrir aldraða.
4. Rekstur stofnanaþjónustu fyrir aldraða í sérstökum tilvikum, sbr. 14. gr.
5. Rannsóknir, kennslu og kynningu á öldrunarmálum.
6. Önnur verkefni sem eru í samræmi við markmið laganna.
Af hverju er þetta ekki bara innifalið í skattinum sem maður borgar í hverjum mánuði? Í stað þess að maður sé að pirra sig á þessu í hverjum júlímánuði. Í það minnsta hlýt ég að gera þá kröfu að þegar ég loksins kemst í hinn annars ágæta hóp aldraðra, þá bíði mín einhvers staðar glæsileg villa með heimaþjónustu allan sólarhringinn.
Annars vona ég að þetta blogg hafi verið fróðlegt og upplýsandi fyrir þá sem lásu.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home