þriðjudagur, júlí 12, 2005

-Tilkynningaskyldan-
Eftir nokkuð magra bloggvertíð undanafarið hef ég ákveðið að láta aðeins heyra frá mér. Eitt og annað hefur komið í veg fyrir skrif hér á þessa síðu og bið ég æsta aðdáendur forláts á því.

Á dögunum fjárfesti ég í forláta fartölvu, sem hefur reynst líka svona vel. Auk þess kom ég mér upp þráðlausu neti hérna heima fyrir og nú getur maður bloggað af klósettinu ef manni sýnist svo (þess ber þó að geta að þessi pistill er ekki ritaður á klósettinu). Nú er sem sagt bara allt þráðlaust eins og sagði í auglýsingunni frá Svar hérna um árið, fyrir þá sem muna eftir henni...og hver gerir það ekki?

...annars langar mig að geta þess að ég keypti mér á dögunum nýja diskinn með norska dúóinu Röyksopp, og hann er bara býsna góður, vinnur á með hverri hlustun. Merkilegt hvað Norðmenn eru að búa til athyglisverða tónlist um þessar mundir. Auk þess eignaðist ég dvd disk hvar Brian Wilson og hljómsveit flytja tónverkið Smile á tónleikum, og það verður að segjast að það er algjör snilld. Bandið sem er á bakvið kallinn er eitthvað það allra besta sem maður hefur séð lengi, og kallinn sjálfur virðist verða sprækari með hverjum deginum. Mæli með þessu.
Þar að auki keypti ég mér fyrsta Interpol diskinn, Turn on the bright lights, og varð ég ekki fyrir vonbrigðum með hann, afskaplega góð rokkhljómsveit...allt eins og það getur best orðið.
Gaman að geta sökkt sér ofan í svona mikið af "nýrri" tónlist, auk þess sem nýi Dave Matthews Band diskurinn bíður mín heima hjá Jóa...já það eru svo sannarlega jólin um þessar mundir.

Annars hef ég lítið annað að segja í bili.
Ég hringi síðar.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com