-Bol fyrir blóð-
Í dag fór ég og lagði mitt af mörkum í þágu vísindanna. Fór og gaf blóð vegna rannsóknar á arfgengi krabbameins...allt mjög göfugt og fallegt. Eftir að hafa skrifað undir reiðinnar ósköp af pappírum, þar sem ég meðal annars lýsti því yfir að ég myndi ekki krefjast hlutdeildar í fjárhagslegum hagnaði sem hugsanlega yrði af þessu rannsóknarverkefni, lét ég pumpa út slatta af blóði...allt í þágu vísindanna. Svo þegar því var lokið var ég leystur út með glæsilegum bol, merktum Íslenskri erfðagreiningu. Það fannst mér vera sanngjörn skipti, enda alls óvíst að einhver fjárhagslegur hagnaður verði af þessari rannsókn. Ég á þó allavega nýjan bol.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home