-Tilkynning-
Í annað skiptið á rúmri viku ligg ég heima veikur eins og hver annar aumingi. Að þessu sinni er einhver kvefskítur að gera mér lífið leitt og ef ekki hefði verið fyrir Jóa og hans snöggu viðbrögð er ég bað hann um að endurtengja fyrir mig breiðvarpið, þá væri ég dáinn úr leiðindum...ekki að það sé eitthvað merkilegt á breiðvarpinu, en það allavega styttir manni aldurinn á þessum erfiðu tímum.
Vegna þessara veikinda hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér í íslenska landsliðið fyrir leikinn í kvöld á móti Möltu, og voru vandræði landsliðsins þó næg fyrir. Ég hef þó vissu fyrir því að strákarnir þjappa sér bara enn betur saman og komast yfir þessa erfiðleika. Hugsa að við náum jafnvel að merja jafntefli í kvöld.
Mig langar að minnast aðeins á unga þingkonu okkar Íslendinga. Hún heitir Dagný og situr á þingi fyrir Framsóknarflokkinn, og hefur vakið athygli fyrir einkar undarlega framgöngu á sínu fyrsta kjörtímabili. Hver man til að mynda ekki eftir því þegar hún gaf skít í hugsjónir sínar, og sagði að á þingi væru menn í ákveðnu liði og yrðu að spila með því! Auk þess vakti athygli þegar þessi unga kona greiddi atkvæði með frumvarpi í nefnd, mál sem hún sagðist þó á opinberum vettvangi vera mótfallin, en þrátt fyrir skýra andstöðu við frumvarpið ákvað hún að sitja hjá við atkvæðagreiðslu þegar frumvarpið var borið undir Alþingi.
Nú gengur þessi unga kona fram fyrir skjöldu og segir hreint út að slök útkoma Framsóknarflokksins í skoðanakönnunum undanfarið sé allt saman Kristni H. Gunnarssyni að kenna! Er þetta vænleg aðferð til að bæta ímynd flokksins og afla honum frekara fylgis meðal landsmanna, að úthúða ákveðnum þingmanni flokksins og kenna honum um allar ófarir undanfarinna mánaða? Getur ekki frekar verið að fólk sé bara orðið þreytt á vitleysingum eins og Dagnýju Jónsdóttur og hennar félögum í flokknum?
Synd hvað það eru fáir valkostir þegar kemur að stjórnmálaflokkum sem Sjálfstæðisflokkurinn gæti hugsanlega átt stjórnarsamstarf með.
Annars segi ég bara Áfram Ísland!!!
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home