þriðjudagur, maí 24, 2005

-Allt að gerast-
Þá er mál að fara að hefja ritstörf aftur, eftir langt hlé, og hér á eftir kemur pistill um það sem á daga mína hefur drifið undanfarið.
Fyrir það fyrsta þá hef ég hafið störf við símasölu hjá Símanum, enn eitt sumarið, við mikla hrifningu sem og mikla hrygningu. Ef húsfrúna vantar telefón, kemur hún í Símann.

Ég var að fá fyrstu einkunnina mína þetta vorið. Íslands- og norðurlandasaga IV steinlá, 8,5 í einkunn...bara ágætlega sáttur við það.

Kóngarnir hafa hafið keppni í Utandeildinni þetta árið, og vannst fyrsti leikur með fimm mörkum gegn engu. Býsna góður sigur, og átti strákurinn (sem bæ ðe vei nær rétt um 173 cm) skalla að marki sem var varinn. Gaman að því samt.

Á morgun er svo hvorki meira né minna en leikur ársins, þegar mínir menn í Liverpool mæta ítalska mafíósaliðinu AC frá Mílanóborg. Án nokkurs vafa eiga mínir menn eftir að rúlla þessum leik upp svo eftir verður tekið. Það skal tekið fram að ég verð upptekinn á morgun eftir 18:45.

Svo var ég að sjá að Smile tónleikarnir eru komnir út á dvd...það held ég að maður fari að skella sér á amazon.com og græja eina pöntun frá BNA.

Læt þetta gott heita í bili.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com