fimmtudagur, maí 12, 2005

-How deep is the valley?-
Ég las það í dag að smáskífa hljómsveitarinnar Leaves, sem inniheldur lagið The spell, er væntanleg í lok mánaðarins. Þetta er þó nokkurt tilhlökkunarefni því lagið er bara ansi gott og fengur að skífunni. En það er annað sem er ekki minna tilhlökkunarefni, því aukalag á smáskífunni verður kóverútgáfa af laginu ´Til I die, eftir Brian nokkurn Wilson og var flutt af Beach Boys í upphafi áttunda áratugarins. Þetta lag er nefnilega búið að vera í nokkru uppáhaldi hjá mér undanfarið, enda flott lag og hrikalega falleg raddútsetning, lagið er nánast bara borið uppi af orgeli og röddum. Kjempe flott. Texti lagsins er hins vegar mjög þunglyndislegur, enda var téður Brian í miklum öldudal á þessum tíma, djúpt sokkinn í vímuefni og þjakaður af geðrænum vandamálum, hressandi mjög.

...en lagið er gott.

I'm a cork on the ocean
Floating over the raging sea
How deep is the ocean?
How deep is the ocean?
I lost my way
Hey hey hey

I'm a rock in a landslide
Rolling over the mountainside
How deep is the valley?
How deep is the valley?
It kills my soul
Hey hey hey

I'm a leaf on a windy day
Pretty soon I'll be blown away
How long will the wind blow?
How long will the wind blow?
Ohhhh

Until I die
Until I die
These things I'll be until I die

Lýkur þar með poppfræðapistli dagsins.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com