-Columnated ruins domino-
Hafi einhverjir verið að velkjast í vafa, þá staðfestist það í gær að ég er ókrýndur meistari í Popppunkti. Enn einu spilinu var rúllað upp af mér og það innan um hóp tiltölulega poppfróðra manna og kvenna. Glæsilegt Sverrir, glæsilegt!!!
Einnig fór ég í fyrsta próf annarinnar í gær og gekk bara býsna vel, allavega skrifaði ég reiðinnar ósköp og vona bara að kennarinn finni eitthvað af viti þarna inn á milli.
...og þá eru bara tvö próf eftir, líf og fjör.
Meira var það ekki í bili.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home