miðvikudagur, apríl 06, 2005

-Eins dauði er annars brauð-
Af dánarfregnakeppninni er það að frétta (fyrir þá sem á annað borð hafa áhuga) að ég náði páfanum eftir mjög langa og stranga bið. Söfnuðust þar með tíu stig í sarpinn, en þau voru fljót að fara því í morgun barst mér sms frá bróður mínum með þeim orðum að Rainier fursti af Mónakó væri látinn. En svona gerast bara kaupin á eyrinni.

Annars gerðust þau undur og stórmerki í dag að ég fór í hádeginu á veitingastaðinn Grænn kostur, en eins og glöggir lesendur eflaust átta sig á þá er þarna um að ræða veitingastað sem er eingöngu með fæði fyrir þá sem flokkast undir það að vera grænmetisætur. Ég lét sem sagt teyma mig þangað inn og þarna tókst mér að snæða alveg sérdeilis ágætan hádegisverð. Eftir sem áður þá held ég að það þurfi eitthvað mikið að gerast til þess að ég helli mér af fullu kappi út í grænmetið...maður lifir jú ekki á grasi einu saman, auk þess myndi KFC missa dyggan viðskiptavin og slíkt gæti haft slæm áhrif á það annars ágæta fyrirtæki.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com