-Móðurmál og feðratunga-
Þeir sem þekkja mig vita að ég hef afskaplega lítið álit á Þorsteini Gunnarssyni svokölluðum íþróttafréttamanni. Maðurinn getur ekki komið frá sér heilli setningu án þess að hún sé bjöguð á einhvern hátt. Maðurinn talar um "ússendigu" í staðinn fyrir útsendingu. Franski leikmaðurinn Thierry Henry verður allt í einu Tér Anrí í hans munni, hið skemmtilega fyrirbæri hornspyrna ber hann fram sem "hosspyddna", og svona gæti ég haldið áfram í allt kvöld. Í gær kastaði svo tólfunum þegar hann talaði um það að einhver leikmaður í einhverju liði hefði verið rekinn af leikvelli "fyrir tvö gul spjöld". Það er þá sennilega í fyrsta skipti í sögu fótboltans.
Svo telur þessi maður sig vera að vernda íslenskt móðurmál og feðratungu með því að fá það í gegn að enskar íþróttalýsingar verði bannaðar í íslensku sjónvarpi.
Reyndar er þessi stétt uppfull af mönnum sem virðast ekki hafa mikið vald á íslenskri tungu. Gaupi talar til að mynda iðulega um að hinn eða þessi leikmaður hafi ekki "stigið feilnótu í leiknum".
En sem betur fer eru þessir menn að vinna við það sem þeir vinna við...annars hefði ég líklega ekkert til að skrifa um núna.
Annars er bara vorhátíðin Páskar ´05 á næsta leyti. Það verður fjör.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home