miðvikudagur, mars 09, 2005

-Fótboltablogg-
Í kvöld fóru fram nokkrir leikir í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar (e. Champions League), en það er keppni bestu liða Evrópu og án nokkurs vafa sterkasta keppni félagsliða sem boðið er upp á um þessar mundir. Aðeins allra sterkustu lið álfunnar komast í 8-liða úrslit og er það um leið ákveðinn gæðastimpill á þá knattspyrnu sem þau lið leika.
Í þessu samhengi er ekki úr vegi að geta þess að mínir menn í Liverpool léku einmitt í þessari keppni í kvöld. Þeirra beið hið næsta ómögulega verkefni að etja kappi við Bayer Leverkusen, á þeirra eigin heimavelli, og verja tveggja marka forystu frá fyrri leik þessara liða. Þjóðverjarnir höfðu fyrir leikinn í kvöld leikið þrjá leiki á heimavelli í þessari keppni og unnið þá alla sannfærandi.
Til að gera langa sögu stutta, þá komu mínir menn fullir sjálfstrausts í leikinn og hreinlega völtuðu yfir þá þýsku og sýndu þeim hvernig leika skal fótbolta af hæsta kalíberi. Fóru leikar þannig að bresku Bítlarnir skoruðu þrívegis en þýska "stálið" náði fyrir náð og miskunn minna manna að setja eitt mark í lokin, enda höfðu þeir þá haft tæpar níutíu mínútur til að læra knattleik af enskum og greinilegt að kennslustundin var farin að bera einhvern árangur undir lokin.
Mínir menn sem sagt komnir í 8-liða úrslit í keppni þeirra bestu í Evrópu og sé ég ekkert því til fyrirstöðu að við löndum þessari dollu sem keppt er um, enda frekar slöpp lið eftir í keppninni.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com