miðvikudagur, mars 09, 2005

-Eureka eureka!-
Ég uppgötvaði á dögunum alveg sérdeilis athyglisverða hljómsveit, sem kallar sig Tenderfoot. Sá þá spila nokkur lög í einhverjum þætti á einhverri sjónvarpsstöð og þeir heilluðu mig nóg til að mig langar að hlýða á diskinn þeirra, sem mér skilst að sé nokkuð góður áheyrnar. Nú mætti einhver sem á eftir að gefa mér afmælisgjöf endilega færa mér þennan disk að gjöf, og eins diskinn með hljómsveitinni The Arcade Fire, sem er dulítið forvitnileg hljómsveit...en byrjum allavega á Tenderfoot.
Annars er ég bara góður.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com