föstudagur, mars 04, 2005

-Allt tíðindalaust af vesturvígstöðvunum-
Ég hef frá afskaplega fáu að segja þessa dagana. Fór reyndar á Hansen í gærkvöldi og fékk mér nokkur tilboð. Í fyrsta skipti í langan tíma sem ég fer á þetta musteri hafnfirsks skemmtanalífs, hef ekki komið þangað inn eftir að axarárásin fræga átti sér stað þarna inni. Í gær var sú nýbreytni að hljómsveit sté á stokk og framdi tónlistarleg hryðjuverk. Þetta voru sem sagt þrír drengir, vopnaðir tveimur gítörum og rafurmagnsbassa. Þetta var eitthvert versta tónlistaratriði sem ég hef á ævinni orðið vitni að...sérstaklega var útgáfa þeirra af laginu Livin´ on a prayer eftirminnileg. Ef forsvarsmenn Hansen lesa þetta (sem ég hef fulla trú á að þeir geri), þá mælist ég til þess að héðan í frá verði okkur fastagestum staðarins hlíft við svona ófögnuði.

Annars er ég bara temmilega hress...Idol og bjór í kvöld hjá brósa...lífið er í föstum skorðum þessi misserin.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com