miðvikudagur, febrúar 09, 2005

-Fótboltafélagið Falur-
Allt í einu fékk ég Fótboltafélagið Fal í kollinn núna rétt í þessu. Þetta eru einhverjar fyndnustu teiknimyndasögur sem gefnar hafa verið út. Liðið sem í upphafi hverrar bókar var í slæmri stöðu og fall blasti við liðinu, en á einhvern ótrúlegan hátt tókst þeim alltaf að snúa taflinu við og enda sem meistarar. Minnistæðust er bókin þegar þeir fóru á Heimsmeistaramótið sem haldið var í Argentínu ef ég man rétt, og þeir komu við á Íslandi og spiluðu nokkra æfingaleiki hérna...mjög sniðugt allt saman. Gaman væri ef einhver lumaði á upplýsingum um það hvort hægt væri að nálgast þessar sögur með einum eða öðrum hætti...óskaplega yrði maður glaður.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com