-Það má ekki bjóða þér peninga?-
Ég fékk ansi skemmtilegan glaðning með póstinum í dag. Stéttarfélagið sem ég er skráður í ákvað að senda mér eitt stykki ávísun upp á hátt á þriðja tug þúsunda króna...óumbeðið, og án nokkurra útskýringa. Þar sem ég áleit þetta vera einhvern misskilning, þar eð ég taldi mig ekki eiga neitt inni hjá félaginu, þá ákvað ég að rífa ávísunina og kveikja svo í henni.
Eftir smá eftirgrennslan kom svo reyndar í ljós að í tilefni af 90 ára afmæli félagsins var ákveðið að endurgreiða félagsmönnum einhvern hluta af árgjaldi síðasta árs.
Svo nú er ég að dunda mér við að líma saman brotin og ætla að skunda niður í banka í fyrramálið og leysa út þessa peninga. Ekki veitir af fyrir fátækan námsmann. Það má nefnilega kaupa ófáa bjórana fyrir þessa summu.
Að lokum langar mig að benda fjelögum í Sögufjelagi Hafnarfjarðar að líta á heimasíðu fjelagsins, því þar hangir áríðandi tilkynning.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home