-Athyglisverðar...-
...en vita gagnslausar upplýsingar. Eftir að tölvan mín hrundi á dögunum þurfti ég að setja upp iTunes spilarann minn aftur og þar með endurstilltust allar upplýsingar, til að mynda listinn yfir 25 mest spiluðu lögin, sem ætti að öllu eðlilegu að endurspegla hvað ég er að hlusta mest á þau misserin.
Það er gaman að segja frá því að núna þegar spilarinn nýi er búinn að vera í gangi í tíu daga þá eru tvö mest spiluðu lögin annars vegar Sail on sailor með Beach boys og hins vegar Heart of gold með Neil Young. Þetta þykir mér ansi athyglisvert. Í kjölfarið fylgja svo til að mynda Flaming lips, Kings of convenience og Morrissey svo einhverjir séu nefndir.
Nánari upplýsingar veiti ég í gegnum tölvupóst, fyrir þá sem eru áhugasamir.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home