-Tímamót-
Það gleður mig óneitanlega mikið að geta tilkynnt það hér á þessari síðu að ég hefi náð 28 ára aldri. Fyrir mig sem tónlistarmann eru þetta gríðarleg tímamót enda ófáar rokkstjörnurnar sem látist hafa 27 ára gamlar. Þakka ég þennan áfanga heilbrigðu líferni og góðum vinum og vandamönnum.
Ég þakka þeim sem sent hafa mér hlýjar kveðjur á afmælisdaginn, og allar þær góðu gjafir sem mér hafa borist.
Að auki langar mig að benda lesendum þessarar síðu á Fréttablaðið í dag, hvar ritstjóri þessarar síðu er talinn upp meðal helstu afmælisbarna dagsins í dag (Þar var ég reyndar sagður vera 27 ára gamall...og fer hér með fram á leiðréttingu í blaði morgundagsins). Er drengurinn þar í hópi ekki ómerkari manna en Valgeirs Guðjónssonar og fleiri stórmenna. Gaman að því.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home