-Hlýindaskeið framundan-
Á þessum árstíma þykir mjög móðins að birta einhvers konar spá fyrir árið sem framundan er. Ég ætla að taka þátt í þessum leik upp að vissu marki, því ég ætla hér og nú að spá því að næstu mánuðir muni einkennast af miklum hlýindum og að ekki muni snjóa aftur fyrr en næsta haust. Nú hugsa eflaust margir hvað ég þykist hafa fyrir mér í þessu.
Jú þetta er einföld lógík. Í allt haust hefur verið kvabbað í mér úr ýmsum áttum yfir því að bíllinn minn á sumardekkjum. Ég hef alltaf borið því við að síðustu vetur hafi verið mildir í meira lagi og því sé sama og engin þörf á að eyða tugþúsundum í vetrardekk. Eftir blindbyl morgunsins ákvað ég hins vegar loksins að láta verða af því, og lét smella fjórum vetrarhjólbörðum undir rennireiðina...og viti menn, með það sama fór að hellirigna og allur snjór er meira og minna að losna upp. Í framhaldi af því dembi ég fram þessum spádómi, að nú loksins þegar ég er kominn á vetrardekk þá verði ekki lengur nein þörf á þeim. Vitið´ér bara til.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home