miðvikudagur, desember 22, 2004

-Sinn er siðurinn í hverju landi-
Það rifjaðist upp fyrir mér sérdeilis fyndin saga sem ég heyrði einhverju sinni um jólahald í Singapúr. Þannig er mál með vexti að margar þjóðir í austri hafa æ meir farið að halda einhvers konar jólahald í ætt við vestrænar hefðir. Í Singapúr virðast menn eitthvað hafa ruglað saman þeim atburðum sem áttu að hafa gerst á jólunum í fyrndinni, því í einni verslun mátti sjá jólaskreytingu þar sem búið var að krossfesta jólasveininn!
Blöndum öllum þessum hátíðum, jólum, páskum og hvað þær heita nú, öllum í einn pott og sjáum hvort það kemur ekki eitthvað sniðugt útúr þessu.

Annars bjó ég til mjög skemmtilegt spakmæli í kvöld, sem var eitthvað á þessa leið:
Það mætti segja að seríur séu mjög lýsandi fyrir jólin.

Það verður vart dýpra en þetta.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com