-Að því er segir í tilkynningunni...-
Rakst á eftirfarandi frétt á mbl.is og fannst orðasambandið "að því er segir..." vera pínulítið ofnotað.
Jólaþorpið í Hafnarfirði var opnað dag fyrir framan Hafnarborg og Fjörð, að því er segir í tilkynningu Hafnarfjarðarbæjar. „Jólaþorpið samanstendur af 20 litlum húsum þar sem verða á boðstólum vörur sem tengjast jólunum, þ.e. jólaskraut, hlutir til gjafa og matvara svo eitthvað sé nefnt,“ að því er segir í tilkynningunni.
Um leið og starfsemi jólaþorpsins hófst í dag voru tendruð jólaljós á tré frá vinabæ Hafnarfjarðar, Frederiksberg, auk þess sem skemmtidagskrá fór fram og Grýla og jólasveinar mættu á svæðið.
Að því er segir í tilkynningu Hafnarfjarðarbæjar verður jólaþorpið opið allar aðventuhelgar frá 12-18 og verður skemmtidagskrá í boði hverja helgi.
Að því er segir í tilkynningu frá mér, þá fannst mér ég vera knúinn til að deila þessu með ykkur.
Góðar stundir...að því er segir í tilkynningunni.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home