fimmtudagur, október 28, 2004

-Tilkynningaskyldan-
Á laugardaginn síðasta gerði ég mér lítið fyrir og fór á tónleika í Hafnarhúsinu á vegum Airwaves, hvar fram komu hljómsveitirnar Honeymoon, Leaves, Maus og Keane. Einkar ánægjulegt og vel heppnað kvöld. Hljómsveitirnar voru raunar misgóðar, Honeymoon var allt í lagi...fá reyndar stóran plús í kladdann fyrir að kóvera hið klassíska lag Running up that hill eftir hina kyngimögnuðu Kate Bush.
Leaves fóru alveg á kostum, tóku bara ný lög og þau hljóma afskaplega vel. Þyngra efni en þeir hafa verið að gera áður en afskaplega flott tónlist. Mausarar voru ekki alveg í toppformi, ég er alveg sæmilegasti aðdáandi þeirra, en þarna voru þeir ekki alveg að gera sig fannst mér.
Keane komu mér skemmtilega á óvart, kraftmiklir þrátt fyrir að vera bara með tvo hljóðfæraleikara í bandinu og voru þar að auki sprækir á sviðinu og smituðu út frá sér. Þeir renndu í gegnum plötuna sína og tóku að auki nokkur ný lög sem hljóma eiginlega bara mun betur en flest laganna af plötunni þeirra. Frábær frammistaða.
Eins og áður sagði, afskaplega ánægjulegt og vel heppnað kvöld.

Síðustu dagar hafa svo að mestu farið í að skrifa ansi skemmtilega ritgerð sem ég skilaði af mér í fyrradag...sem var mikill léttir.

Í gær fór ég svo að sjá Blindsker í bíó...og var það bara hin prýðilegasta skemmtun...en bingóið, það heillar...sagði maðurinn.

Hvað hefur þú verið að gera síðustu daga?

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com