-Boy in the well...-
...er lag dagsins. Ansi hreint gott lag af annars ágætri plötu frá REM sem heitir Around the sun...þó að misvitrir gagnrýnendur á mogganum vilji meina að hún sé slök. Kannski ekki ein af betri plötum hljómsveitarinnar en góð engu að síður. Mætti kannski segja að hún samsvari plötum eins og With the Beatles eða Beatles for sale...fínar plötur þó svo að viðkomandi hljómsveit hafi vissulega framleitt betri gripi.
Áhugasömum bendi ég svo á kvöldþátt Jay Leno í kvöld hvar gestir eru Bill Cosby og Brian Wilson, en sá síðarnefndi ætlar einmitt að flytja lag af plötunni Smile sem var að koma út á dögunum...þar erum við sko að tala um eyrnakonfekt af beztu gerð. Ráðlegg öllum áhugamönnum um eyrnakonfekt að verða sér úti um Smile.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home