mánudagur, september 13, 2004

-Kvikmyndasafn Íslands-
Fyrst maður er kominn í skrifham þá er ekki úr vegi að minnast aðeins á Kvikmyndasafn Íslands. Vetrarstarf safnsins er hafið í Bæjarbíói (að sjálfsögðu í Hafnarfirði, fyrir þá sem ekki vissu) og er óhætt að segja að þar kenni margra forvitnilegra grasa. Ég bendi áhugasömum á að smella á www.kvikmyndasafn.is og smella svo í framhaldi af því á Bæjarbíó hlekkinn og kíkja á dagskránna...eflaust eitthvað við allra hæfi.


Eitt að lokum: Glöggir lesendur ráku eflaust augun í það að þessi litli pistill hófst á orðunum (með leyfi höfundar): "Fyrst maður er kominn...". Ég hefi nefnilega tekið eftir því að óvenju margir hefðu skrifað þessa sömu setningu á eftirfarandi hátt: "Víst maður er kominn...". Þetta þykir mér alveg furðuleg íslenska sem þó virðist svolítið vera að festa rætur. Nú er ég enginn íslenskufræðingur, en mikill málfarsfasisti og þykist ég viss um að hér er á ferðinni einhver einkennileg villa hjá þeim sem nota víst í staðinn fyrir fyrst...ekki nema íslenskukennsla sé orðin svona léleg í skólum landsins. Davíð félagi minn hefur vafalítið svar við því á reiðum höndum.

...ekki meira röfl í bili.

Góðar stundir.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com