mánudagur, september 13, 2004

-Hvað er að gerast á Omega?-
Undanfarnar vikur og eflaust mánuði hefur öll dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Omega verið undirlögð af einhverri söfnun...svo sem ekkert nýtt á þeim bænum. Í hvert einasta skipti sem ég hef skipt yfir á stöðina hafa Eiríkur, Gunnar krossari og félagar þeirra verið á skjánum að betla peninga af okkur almúganum.
Ástæða söfnunarinnar að þessu sinni segja þeir vera þá að þeir ætli sér að stækka dreifisvæði stöðvarinnar um heiminn, háleit markmið um að koma merki stöðvarinnar til Afríku, lengra inní Asíu og örugglega alla leið til Fjarskanistan ef kostur er.

Þá er ekki úr vegi að spyrja hvers vegna í ósköpunum mennirnir reyna ekki frekar að bjóða sínum dyggu íslensku áhorfendum uppá sómasamlega sjónvarpsdagskrá í stað þess að eyða öllum útsendingarstundum í það að betla peninga til þess að þeir geti boðið einhverju fólki í fjarlægum löndum uppá kristilegt sjónvarp. Þeir íslensku áhorfendur sem hugsanlega henda peningum í þessa stöð fá í staðinn dagskrá sem byggist uppá samtölum á milli Eiríks sjónvarpsstjóra og Guðmundar whatshisname um mikilvægi þess að ná að sjónvarpa til Kína, á meðan Chang í Kína borgar ekki krónu og fær væntanlega sitt kristilega sjónvarp...ég efast allavega um að þeir séu að sjónvarpa sömu dagskrá þar og hérna...nema Kínverjarnir sjái bara Eirík blaðra á íslensku um mikilvægi þess að fólk gefi honum pening svo hann geti sjónvarpað til Kína.

Nei, okkur almennu áhorfendum er nóg boðið. Hvar er t.d. Laui Laufdal með gítarinn og Elvis röddina? Hvar eru hinar klassísku predikanir sjónvarpsstjórans? Hvar er hinn mjög svo hlutlausi þáttur um Ísrael og ástandið í Mið-Austurlöndum? Hví eru menn hættir að fá fyrirbænir í beinni útsendingu?

Ég vona að forsvarsmenn stöðvarinnar leggi af þessar mjög svo hvimleiðu safnanir og fari að huga að almennilegri dagskrárgerð fyrir okkur þessa dyggu aðdáendur stöðvarinnar (sem höfum reyndar ekki lagt krónu í púkkið).

Virðingarfyllst
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com