laugardagur, ágúst 07, 2004

-Hefst þá aftur fréttaflutningur-
Þá er löngu blogg-sumarfríi lokið og tími til kominn að koma þessari síðu á flot aftur. Þó veit ég að dyggir aðdáendur mínir hafa ekki setið auðum höndum þennan tíma, enda hafa þeir haft aðgang að ansi smellnum skrifum mínum á hina ýmsu vefi, svo sem Sögufjelagsvefinn og Haukavefinn svo einhverjir séu nefndir. Er skemmst að minnast greinar minnar um aðdraganda þess að Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi, sem birtist á vef Sögufjelags Hafnarfjarðar nú á dögunum.

Síðasti mánuður hefur að mestu farið í það sem sumarmánuðirnir eiga að ganga út á, drekka bjór, horfa á fótbolta og spila fótbolta. Reyndar hef ég gert lítið af því að spila fótbolta undanfarið þar sem mér tókst að meiðast á hægra hnénu (aldrei þessu vant meiðist ég við fótboltaiðkun) og þ.a.l. hef ég gert þeim mun meira af því að horfa á fótbolta...og drekka bjór.
Þessi mánuður mun svo að mestu fara í það að lesa undir eitt stykki próf sem ég ætla að bregða mér í eftir tvær vikur, og svo skal skroppið til Lundúna í lok mánaðarins til þess að fagna því að erfiðri prófatörn sé loksins lokið...og drekka bjór.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, en fljótlega fara að birtast pistlar hérna reglulega, m.a. annars einn um draum sem mig dreymdi um daginn þar sem stúlkurnar í hljómsveitinni Nælon koma m.a. við sögu...fylgist spennt með.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com