-Sunshine on my shoulders makes me happy-
Eftir að hafa legið eins og óður maður á refresh takkanum...í tvo heila daga, náði Davíð Ásgríms að verða tuttuguþúsundasti gestur síðunnar. Skýrt var tekið fram í reglum keppninnar að ekki mæti nota refresh takkann til að hoppa upp um sæti. Því hefur Davíð verið dæmdur úr leik og verða verðlaunin veitt þegar gestur númer 25.000 kemur inn á síðuna...enda flottari tala en 20.000.
Á föstudaginn fór ég í innflutningspartý hjá Ívari félaga bróður míns og meðlimi í Sögufjelagi Hafnarfjarðar. Þar var drukkið meira en nóg af bjór, og ég sem þóttist bara ætla að taka því rólega þetta kvöld var orðinn ansi vel hífaður þegar ég fór heim um eitt leytið. Ég var því nær því að vera fullur heldur en þunnur þegar ég tók laugardaginn eldsnemma og mætti á kjörfund rétt rúmlega níu. Mesta furða að mér hafi ekki verið vísað frá kjörstað.
En það er skemmst frá því að segja að ég mætti á kjörstað, fór inn í klefann og í annað skiptið á mínum stutta kosningaferli skilaði ég auðu, og er bara nokk sáttur við þá ákvörðun mína.
Ég veit reyndar um nokkuð marga sem gleymdu að kjósa, sem sýnir kannski ágætlega hversu æsispennandi þessar kosningar voru og valkostirnir frambærilegir. Í það minnsta datt mér aldrei í hug að kjósa Ástþór eftir að hann neitaði að spjalla við mig á Glaumbar eitt föstudagskvöldið í vetur, þar sem hann var nær dauða en lífi (líklega vegna of mikillar neyslu á áfengi), ekki það að ég hafi bara verið að sulla í vatni það kvöldið. Þó bað hann mig að hringja í sig daginn eftir...en ég gerði það því miður ekki, hefði getað orðið fróðlegt.
Annars er ég að spá í að fara að þrýsta á það að Bessi Bjarnason fari í framboð eftir fjögur ár. Held að það sé alveg kominn tími á að það sé einhver Bessi á Bessastöðum, auk þess sem það væri mjög nett að heyra Mikka ref flytja nýársávarpið.
Þessi pistill hófst á orðum John heitins Denver þannig að ég held að það sé við hæfi að Neil Finn úr Crowded House eigi lokaorðin:
Everywhere you go always take the weather with you
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home