-Jæja...-
Sökum óvissu á fjölmiðlamarkaðnum undanfarið hafa skrif á þessa síðu legið niðri. Hafa blaðamenn okkar veigrað sér við því að skrifa um hið umdeilda fjölmiðlafrumvarp enda gæti slíkt verið misnotað í pólitískum tilgangi og haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir framtíð þessarar litlu síðu.
Þó skal tekið fram að eignarhaldsfélag Blaðra blaðra...hefur sent frá sér ályktun um málið þar sem kemur fram að þeir sem að miðlinum standa eru að mestu leyti andsnúnir þessu frumvarpi. Þó viljum við ekki blanda okkur í umræðuna um það hvort forseti Íslands eigi að neita að skrifa undir lögin, sem við teljum þó að hann eigi ekki að gera.
...svo hef ég líka bara verið latur og ekki nennt að skrifa neitt upp á síðkastið...en það fer allt batnandi með hækkandi sól.
Það verður seint sagt að einkunnirnar beinlínis renni til manns í stríðum straumi. Ein einkunn hefur litið dagsins ljós og var þar um að ræða áttu sem var meira en kærkomin. Vonandi verður meira um þetta.
Fótboltinn er að sjálfsögðu byrjaður að rúlla. Liðið mitt Kóngarnir hefur spilað tvo leiki og höfum við unnið flesta þeirra en einhver hluti hefur líka tapast. Án þess að hafa farið út í mikla útreikninga þá hugsa ég að vinningshlutfallið sé einhvers staðar í 50 prósentum. Sem er ekki alvont.
Svo hef ég tekið upp minn gamla starfa frá síðasta sumri sem fréttaritari fyrir haukar.is, hvar ég skrifa umsagnir um leiki meistaraflokks karla í fótbolta. Það eru tveir leikir búnir og hef ég skrifað grein um báða leikina en var þó aðeins viðstaddur annan leikinn. Ég held að enginn hafi séð muninn.
Ég hringi síðar
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home