laugardagur, apríl 17, 2004

-Hver man ekki eftir...-
...þessum manni?



Þetta er auðvitað enginn annar en leynilögreglumaðurinn góðkunni Nik Knatterton. Ég fékk allt í einu mikla löngun til að sjá einhvern af þeim mögnuðu þáttum sem gerðir voru um þennan snilling, og þá á íslensku. Ef ég man rétt þá var það Hallur Helgason sem talaði inná þessa þætti og gerði það af stakri snilld. Hver man t.d. ekki eftir tvöfalda kjaftshögginu....bara til öryggis. Menn gera bara ekki svona teiknimyndir í dag...menn gera að vísu öðruvísi teiknimyndir og eflaust fyndnari og betri....en samt einhver nostalgía við þetta.

Annars er það af sjálfum mér að frétta að síðustu daga hef ég reynt að dunda mér við að klára ritgerð og lesa undir próf, nema hvað að síðustu tveir dagar hafa að mestu farið í að laga tölvuna mína. Það hefur komist einhver leiðindapúki í hana og það endaði með því að það þurfti að formata tölvuna og þeir sem gengið hafa í gegnum slíkt vita hvað það getur nú verið hressandi verkefni.

...fleira var það varla í bili, nema eins og maðurinn sagði:

"Þú varst sjálfur í eina tíð prakkaritvél hefur takka, hverjum sem það er að þakka."

Tja máske að hér sé komin poppgetraun...en þessi er nú af allra léttasta tagi.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com