-...og að ógleymdum Jack Pot-
Þá eru páskarnir liðnir og framundan er tæpur mánuður af próflestri og öllu sem því fylgir...gaman gaman.
Það var ekkert svakalega mikið djammað um páskana. Fór á miðvikudaginn í bæinn með Davíð og Stefáni...which was nice. Fór svo aftur á djammið á laugardaginn með fleiri ungum drengjum sem endaði á því að Jói er allsvakalega krambúleraður í andlitinu eftir hinn stórskemmtilega hlaupa-á-hvorn-annan leik sem hann og Stefán fundu upp. Mæli eiginlega ekki með þeim leik, nema menn standi frekar fast á eigin fótum allajafna.
Bróðir minn flaug í morgun utan til Lundúna ásamt drengjunum úr knattspyrnuliði Hauka. Að sjálfsögðu fékk litli bróðir það hlutverk að skutla þeim stóra út á völl. Þurfti að vakna klukkan hálf fimm í nótt til þess að keyra suður í Keflavík...í fjórða skiptið á stuttum tíma. Ég hata að keyra þessa leið...sérstaklega ef ég er ekki að fara út. Mæli með því að flugvöllurinn verði fluttur nær Hafnarfirði.
Ég fór á ódýra tónlistarmarkaðinn í Perlunni á laugardaginn og labbaði út þremur diskum ríkari. Keypti mér DVD disk með Secret world tónleikum Peter Gabriel. Ég á þessa tónleika á vídeóspólu en alltaf skemmtilegra að eiga hlutina á dvd. Svo keypti ég mér disk með hljómsveitinni Alfie sem er í svolitlu uppáhaldi hjá mér þessa dagana, og að lokum keypti ég þýskan disk sem heitir Schlager history. Þetta er í einhverri röð og þessi er númer sex í röðinni ef ég man rétt. Þarna á til að mynda Siw Malmquist eitt lag sem og Die Flippers, Peter Beil og fleiri og fleiri. Auk þess má finna þarna ágæta útgáfu af laginu Ein bisschen frieden sem sigraði í júróvisjón keppninni árið 1982 ef ég man rétt.
Góðar stundir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home