mánudagur, mars 22, 2004

-Helgarútgáfan-
Þessi helgi hefur að mestu farið í hundleiðinleg veikindi. Búinn að vera uppfullur af einhverju kvefi og hálsbólgu og almennum leiðindum. Þrátt fyrir það var nú ýmislegt brallað um helgina, og í þessari ritgerð sem hér fer á eftir ætla ég að fjalla stuttlega um helstu atburði helgarinnar, orsakir og afleiðingar þeirra. Með fyrirfram þökk.

Föstudagskvöldið hófst á því að ég og nokkrir drengir úr fótboltafélaginu Kóngarnir fórum niður á Fréttablað og hringdum út eitt stykki skoðanakönnun til fjáröflunar fyrir félagið. Niðurstöður þessarar könnunar hafa verið að birtast síðustu tvo daga í blaðinu, mjög skemmtilegt allt saman.
Eftir þessa hressandi könnun fór ég í matarboð til Jónsa félaga míns. Hann matreiddi ofan í okkur ljúffengt svínakjöt. Hafi hann þökk fyrir.
Eftir þennan ljúffenga mat þá var komið að hápunkti kvöldsins, tónleikum Damien Rice, en eins og dyggir lesendur muna eflaust eftir þá vann ég tvo miða hjá Rás tvö á þessa tónleika. Það er skemmst frá því að segja að tónleikarnir voru frábærir. Ég þekkti ekki mikið til kappans fyrir tónleikana en hann náði að heilla mig algjörlega uppúr skónum. Ég bauð Jóa félaga mínum með mér á tónleikana og hann þekkti minna til herra Rice en ég og ég er ekki frá því að Jói hafi líka verið heillaður að loknum tónleikum.

Laugardagurinn fór bara í almenn veikindi að mestu. Um kvöldmatarleytið fór ég reyndar inn í Egilshöll og spilaði eitt stykki fótboltaleik með Kóngunum gegn ónefndu stórfyrirtæki og fóru leikar þannig að mitt lið skoraði fjögur mörk en hitt liðið skoraði fimm. Frekar mikil vonbrigði að tapa þessum leik, sérstaklega þar sem ég fékk algjört dauðafæri rétt fyrir leikslok en lét verja frá mér. En svona er þetta stundum.

Dagurinn í dag hefur svo farið í hálsbólgu og almenn leiðindin. Stytti mér reyndar aldurinn með því að horfa á sögu Bítlanna á dvd, eitthvað sem maður þreytist seint á að horfa á.

Framundan er svo vika full af allskonar viðburðum, stórum og smáum. En þessi vika, hún er liðin og kemur aldrei aftur. Svo maður vitni í skáldið George Harrison:

"All things must pass"

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com