-Dagur ei meir-
Búinn að vera strembinn dagur. Var að vinna hálfan daginn eins og venjulega, fór á æfingu með Lagerlúðunum...fyrsta og seinasta æfing fyrir "stóra" spileríið á morgun (laugardag). Tók dágóðan part af deginum í að redda mér conga trommum...og það hófst á sjötta tímanum í dag. Komst svo í klippingu klukkan sex þökk sé Villa rakara sem bjó til tíma handa mér með engum fyrirvara.
Svo er bara árshátíðin annað kvöld, verður eflaust líf og fjör.
Það verður eflaust líka líf og fjör á Bítlatónleikunum í Höllinni á morgun. Mikið tjútt framundan á morgun greinilega.
En talandi um Bítlana, þá hef ég verið að taka fyrri helminginn af þeirra ferli í meiri sátt undanfarna daga. Mér hefur alltaf fundist þeir vera bestir á tímabilinu ´65-´69, en fyrstu árin hafa mér alltaf fundist mun síðri. Hef svolítið verið að hlusta á fjórar fyrstu plöturnar þeirra síðustu daga og þetta er nú bara helvíti góð tónlist verð ég að segja. A taste of honey hefur t.d. verið mikið á replay undanfarið, ansi flott lag sem mér fannst alltaf frekar leiðinlegt hér áður fyrr.
Hvaða blaðamaður á DV hefur ekkert betra að gera í vinnunni en að elta uppi einhverja vitleysu í Leoncie? Er þessi blessaða manneskja ekki alveg komin með nægt pláss á síðum blaðanna í bili? Sakar alla sem nenna ekki að hlusta á eða spila "tónlistina" hennar um rasisma. Tónlistin hennar er í besta falli í svipuðum "gæðaflokki" og það sem Gunnar heitinn Jökull var að gera síðustu árin sem hann lifði, blessuð sé minning hans.
...en ég er kannski bara rasisti.
"Is it because I is black?"
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home