sunnudagur, febrúar 15, 2004

-BAFTA verðlaunin-
Í stað þess að endurtaka sjálfan mig ár eftir ár hér á blogginu þá bendi ég bara á þessa færslu sem ég gerði í fyrra hvar ég gagnrýndi útsendinguna frá BAFTA verðlaununum í fyrra. Þetta sem sagt endurtók sig í kvöld og því á pistillinn frá 24. febrúar í fyrra mjög vel við í kvöld.

Annars er það af mér að frétta að ég fór á körfuboltaleik í kvöld! Já aldrei þessu vant. Leikurinn var á milli Hauka og KR og var alveg hreint stórskemmtilegur og réðust úrslitin ekki fyrr en á síðustu sekúndunni og voru það Haukar sem fóru með sigur af hólmi. Gaman að því.

Að lokum langar mig að óska Hilmari og frú til lukku með að vera flutt í nýju íbúðina og ég bíð bara spenntur eftir að verða boðið í innflutningspartý

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com