föstudagur, febrúar 06, 2004

-Fundarsetur-
Var að koma úr prófi í Mannkynssögu 2. Held að mér hafi gengið ágætlega, þetta var svona próf eins og þau voru hvað skemmtilegust í Flensborg. 40% krossar og svo stuttar spurningar um þekkta einstaklinga og atburði. Einfalt og þægilegt.

Helgin sem nú er framundan mun einkennast af mikilli fundasetu hjá mér. Annað kvöld er aðalfundur Sögufjelags Hafnarfjarðar, þar sem ég gegni formennsku. Fyrir fundinum liggur m.a. að samþykkja ný lög fjelagsins og taka inn nýja meðlimi. Verður hressandeh.

Svo á sunnudaginn verður haldinn aðalfundur knattspyrnufélagsins Kóngarnir hvar ég gegni hlutverki gjaldkera, sem ég hef gert síðustu tvö árin að mig minnir. Þar ber hæst ráðning nýs þjálfara fyrir komandi leiktíð auk þess sem skipað verður í helstu embætti klúbbsins og línur lagðar fyrir átökin á komandi sumri.

Synd að maður fái ekkert borgað fyrir að gegna svona veigamiklum hlutverkum í jafn veigamiklum f(je)élögum. Þá væri ég ríkur.... ef ég væri ríkur....dararararara.....o.s.frv.

Þetta verður svo sannarlega viðburðarík helgi.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com