-Merkisdagur-
Á þessum degi, 30.jan (það er kominn 30. þegar þetta er skrifað) fyrir 35 árum síðan gerðist merkur atburður.
Jú það var einmitt á þessum degi sem haldnir voru tónleikar á þaki þessa húss:
...og það voru engir aðrir en sjálfir Bítlarnir sem héldu þarna sína hinstu tónleika.
Forsaga málsins er sú að Bítlarnir voru að vinna að verkefni sem fólst í því að þeir myndu semja og æfa upp nokkur ný lög og myndu síðan flytja þessi lög á tónleikum fyrir fullt af áhorfendum, og allt heila klabbið átti að verða kvikmyndað og gert að bíómynd. Þegar komið var fram á þann 30. hafði planið hins vegar breyst þó nokkuð.
George Harrison, gítarleikari, hafði nokkrum dögum áður strunsað útaf æfingu og sagðist ekki nenna þessu lengur, hann væri hættur í Bítlunum. Hafði hann þá lent í einu af mörgum rifrildum við Paul nokkurn McCartney. Auk þess leist honum frekar illa á þetta verkefni og þá sérstaklega að vera filmaður allan tímann, auk þess sem æfingar fóru fram í risastóru kvikmyndaveri sem var varla upphitað og þessi janúar mánuður var sko kaldur.
Drengirnir sem eftir sátu sáu að svona gengi þetta ekki og grátbáðu George að koma til baka og klára verkefnið, en á öðrum forsendum.
Í stað þess að æfa lögin fyrir einhverja stórtónleika var ákveðið að taka bara upp æfingarnar og sjá til með hvort ekki væri bara hægt að gera eðlilega plötu úr því öllu saman. Auk þess fluttu þeir æfingarnar yfir í venjulegt stúdíó sem stóð við götuna Savile Row númer 3. Þar að auki fengu þeir hljómborðsleikarann Billy Preston til liðs við sig og má þakka honum að miklu leyti að þetta verkefni allt saman gekk upp, enda miklir brestir komnir í Bítlasamstarfið á þessum tímapunkti.
Eftir stóðu hins vegar skuldbindingar við kvikmyndafyrirtækið Universal (að mig minnir) um að klára þessa kvikmynd sem var tekin upp samhliða, og til að finna einhvern sæmilegan endi á myndina var ákveðið að skella sér bara upp á þak og telja í nokkur lög. George (Harrison) var reyndar frekar mótfallinn þessari hugmynd en lét sig hafa það og úr varð ein af merkilegri stundum í rokksögunni.
Nú spyrja eflaust margir sig: En hvað varð um plötuna sem þeir tóku upp?
Jú, plata þessi, sem upphaflega átti að heita Get Back, fékk nafnið Let it be og kannast vafalaust margir lesendur við álit mitt á þeirri plötu, og þá sérstaklega hlut Phil Spector morðingja (?) í henni. Það er efni í annan pistil.
En svona er sagan um tónleikana á þakinu. Var hún ekki bara skemmtileg?
Það er reyndar einu við þetta að bæta. Ég og Jói félagi minn römbuðum einmitt á þessa götu þegar við vorum í London í fyrsta skipti, gott ef það var ekki bara fyrsta daginn. Að sjálfsögðu gengum við að þessu sögufræga húsi. Mig minnir að það sé lögfræðiskrifstofa þarna núna eða eitthvað slíkt. En sagan er góð.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home