-Hvað er Gramophon?-
"Gramophon er vél sem syngur, spilar, talar og yfir höfuð getur haft allt mögulegt eptir, alveg eins og Fonograf, en Gramophon er mikið fullkomnari vél og heyrist allt í honum miklu greinilegra en í Fonograf. Með Gramophon eru brúkaðar plötur en ekki valsar."
Þessa auglýsingu rakst ég á í bókinni Ísland í aldanna rás eftir Illuga Jökulsson bls. 13(vissara að geta heimilda á þessum síðustu og verstu tímum ). Maður þyrfti endilega að ná sér í eina svona vél.
Ég hef löngum haldið því fram að ef einhver tekur sig til og kóverar (e. cover) lag þá nái það aldrei að matsa (e. match) orginalinn (e. the original). Nú hef ég komist að því að þetta þarf alls ekkert að vera algilt. Ég heyrði á dögunum afbragðs ábreiðslu yfir gamla Tears for fears (snilldarband) lagið Mad World með Gary nokkrum Jules og ég verð að segja það (með fullri virðingu fyrir Tears for fears) að nýja útgáfan er mun flottari og lagið fær algjörlega nýtt líf. Mæli með því að fólk tékki (e. check) á þessu lagi.
Nú er orðið langt um liðið síðan ég skrifaði inn á þessa síðu og biðst ég velvirðingar á því. Á þessum tíma hefur eitt og annað gerst sem vert væri að minnast á. Fyrir það fyrsta þá eignaðist Sögufjelag Hafnarfjarðar loksins vefsíðu þar sem málum félagsins verður haldið hátt á lofti. Hér er linkur. Verið velkomin að kíkja í heimsókn hvenær sem er sólarhringsins, það er alltaf opið.
Á morgun er svo stóra stundin í Idol. Hef sterklega á tilfinningunni að röðin verði eftirfarandi:
1. Kalli Bjarni
2. Jón Sig.
3. Anna Katrín
....en hverjum er svo sem ekki sama. En ég ætla þó að horfa á þetta í góðum félagsskap heima hjá brósa og sötra ískaldan bjór með. Gaman gaman.
Svo á föstudaginn eftir viku verður stóri afmælisdagurinn, þegar ég verð árinu eldri en ég hef verið síðasta árið. Mér líst samt ekkert á það.
Mig hefur dreymt ansi undarlega drauma upp á síðkastið, en aldrei þessu vant ætla ég ekki að deila þeim með lesendum mínum. Þeir eru eiginlega of vírd (e. wierd) til þess. Langaði samt bara að deila þessu með ykkur.
Held það sé ekkert fleira í bili.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home