þriðjudagur, janúar 06, 2004

-Heima-Vinna-
Í fyrsta skipti á ævinni er ég að vinna heimavinnu fyrir vinnuna mína (hér ætti að koma eitthvað "hissa" merki en ég held að ekkert merki á lyklaborðinu nái yfir það hvað ég er hissa á þessu). Þar sem fyrirtækið sem ég vinn hjá er að fara í gegnum einhverja massíva útlits- og ímyndarbreytingu þá eiga starfsmenn fyrirtækisins að líta í eigin barm og skoða gaumgæfilega hvað mætti betur fara á þeirra deild og hvað er verið að gera vel. Ég er svo ekki að nenna þessu.
Svo verður afhjúpað nýtt merki fyrirtækisins á næstu dögum, vona að það verði eitthvað húllumhæ í kringum það.

Nú ætla ég að nota tækifærið og samgleðjast honum litla frænda mínum honum Sævari. Fyrir það fyrsta náði NASA að skutla jeppa uppá Mars sem ku vera mikið afrek. Ekki nóg með það heldur skilst mér að fyrsta merkið sem jeppinn sendi frá sér hafi verið Bítlalagið Good morning, good morning. Þar sem drengurinn er einhver mesti stuðningsaðili NASA á Íslandi verð ég að nefna þetta. Gaman að því.
Í annan stað þá var í kvöld dregið í Gettu betur og Sævar og félagar í spurningaliði Flensborgar duttu heldur betur í lukkupollinn því þeir lentu á móti Iðnskólanum í Hafnarfirði. Frá þeim skóla hafa nú sjaldnast komið mikil gáfumenni (en færir iðnaðarmenn) og ætti þetta því að verða auðveld viðureign fyrir Flensborgara.
Í þriðja lagi þá skilst mér að drengurinn eigi að koma fram í Íslandi í dag annað kvöld (þriðjudagskvöld) og ræða þar um Mars og hin tíðu ferðalög þangað. Verður gaman að fylgjast með því.

Fleira er ekki í fréttum í bili.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com