föstudagur, desember 05, 2003

-Leitið og þér munuð finna-
Stundum fer herra blogger frekar í pirrurnar á mér. Hér áðan var ég búinn að skrifa alveg frábæran pistil, trúlega þann besta í langan tíma og svo þegar ég ætlaði að posta og publisha þá bara kemur action cancelled og enginn fór pistillinn á inter-netið, og allt farið sem ég var að enda við að rita. Mjög pirrandi og kennir manni að kópera það sem maður er búinn að skrifa inn.....anywho.

Ég var að kíkja á teljarann fyrir síðuna mína (þá sem þér eruð að lesa einmitt núna) sem er eitthvað sem ég geri annað slagið svona aðallega til að skoða hvort einhver er að sækja þessa síðu heim og hvaðan fólk er að koma. Þetta var ég sem sagt að gera í kvöld og mér til mikillar skemmtunar rakst ég á tvo athyglisverða hluti. Einhverjir hafa verið á leitarsíðunni google og verið að fletta upp einhverjum orðum og lent óvart inná síðunni minni. Einhver var til dæmis að fletta upp Siggi stormur (hef hann sjálfan sterklega grunaðann) og endaði á mér þar sem ég var eitthvað að raupa um þann ágæta veðurfræðing á dögunum. Þetta gerðist sko tvo daga í röð.
Svo var það hitt málið, einhver sem einnig var staddur á google var að fletta upp orðunum Leoncie og naked...........hví í ósköpunum? Hlýtur að vera til eitthvað merkilegra á netinu en það. Ég var reyndar eitthvað að röfla um greyið konuna ekki alls fyrir löngu en ekki í neinu sambandi við að hún væri nakin.
Nú er ég væntanlega búinn að móðga þennan ágætis einstakling sem rambaði inná síðuna mína og hefur kannski verið farinn að hafa gaman af því sem hér er boðið uppá en kemur væntanlega ekki aftur hingað.

Jólasveinarnir eru víst komnir í Smáralindina, verða þar væntanlega þangað til kemur að því að fara að gefa í skóinn. Verður ekki bara að fara að breyta þessum reglum um hvenær á að gefa í skóinn og byrja bara í nóvember svo að þetta sé allt saman í takt. Það væri þá jafnvel hægt að fjölga sveinunum eitthvað til að dreifa álaginu.

Ætla að koma með eina af þessum klassísku poppgetraunum. Þessi verður þó með örlítið breyttu sniði, aðallega svo Pferdinn hlaupi ekki beint í einhverja leitarvél og fletti upp svarinu. Þessar getraunir eiga einmitt að reyna á kunnáttu fólks en ekki hversu klárir menn eru í að leita á netinu.
Úr hvaða lagi er eftirfarandi texti og gefið eins ítarlegar upplýsingar og þið getið um lagið:

I really want to see you
Really want to be with you
Really want to see you lord
But it takes so long, my lord

Jahá, þetta lítur út fyrir að vera auðvelt en þetta gæti leynt á sér. Verðlaun verða veitt fyrir það svar sem mér finnst vera ítarlegast og fer næst því sem ég er að leita að og verða þau varla af verri endanum.

Gohóðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com