þriðjudagur, desember 02, 2003

-Söguleg helgi-
Það var ýmislegt brallað um nýliðna helgi og ber þar kannski hæst að á föstudagskvöldið var haldinn stofnfundur hjá Sögufjelagi Hafnarfjarðar. Var fundurinn haldinn með pompi og pragt heima hjá bróður mínum. Tilgangur fjelagsins er að efla vitund bæjarbúa og annarra um sögu bæjarins og sameina alla þá sem hafa áhuga á annað borð áhuga á þeirri sögu. Á þessum fyrsta fundi félagsins var horft á myndbönd um sögu Hafnarfjarðar frá örófi alda til ársins 1990 og höfðu fundarmenn mjög gaman af. Að mynbandssýningu lokinni hélt ég lítið erindi um sögu Rafha keppninnar í fótbolta með áherslu á hin mörgu kærumál sem einkenndu hina stuttu sögu þessarar keppni. Að því loknu var svo gengið í það að kjósa í hin ýmsu embætti. Bar þar hæst að undirritaður var kjörinn formaður hins nýja fjelags með öllum greiddum atkvæðum. Skipan annarra embætta má sjá á síðunni hjá brósa. Blóm fjelagsins er Baldursbrá.
Að lokum var ákveðið að halda fund ársfjórðungslega hið minnsta. Þó ekki kvartfjórðungslega eins og einn fundarmanna lagði til við mikla kátínu viðstaddra.
Þeim sem hefðu áhuga á að gerast meðlimir er bent á að ræða við formanninn. Enn er þó ekki útséð með hvernig nýir meðlimir verða teknir inn þar sem enn á eftir að semja lög fjelagsins.

En að öðru. Á laugardagskvöldið fór ég út að borða með vinnufélögum mínum á Austur Indíafélaginu. Þar hafði ég aldrei etið áður og varð ekki fyrir vonbrigðum, fínn matur og skemmtilegur félagsskapur. Svo var bara haldið út í hið rómaða skemmtanalíf bæjarins ásamt tveimur drengjum úr vinnunni og svo bættist Stefán félagi minn í hópinn. Gríðarskemmtilegt kvöld, en svo verður væntanlega ekkert djammað fyrr en þann 20. þegar síðasta prófinu lýkur.

Ég þarf að koma á framfæri afsökunarbeiðni vegna síðasta pistils sem ég skrifaði. Þetta er varðandi Steven Van Zandt fyrrum bassaleikara hjá Brúsa frænda og núverandi leikara í Sopranos. Það sem ég gleymdi að taka fram var það að það var Davíð nokkur Ásgrímsson sem benti mér á þetta og kann ég honum beztu þakkir fyrir, en biðst jafnframt afsökunar á að hafa ekki tekið það fram síðast.

Ég var að sjá það að Emile Heskey, leikmaður Liverpool var að skora sitt hundraðasta mark á ferlinum. Þessum áfanga nær drengurinn í 390 leikjum fyrir þau tvö lið sem hann hefur spilað með. Ef ég man rétt þá skoraði Robbie Fowler sín fyrstu hundrað mörk í eitthvað um eða yfir 150 leikjum. Reyndar hefur hlutfallið eitthvað versnað hjá greyið Fowler síðan en þetta sýnir glögglega hversu dapur leikmaður Heskey er og ótrúlegt að ekki sé löngu búið að selja hann. En hvað veit ég um fótbolta?

Sá á Ztöð 2 í kvöld að það var verið að spyrja fólk hvort það vissi af hverju 1.des væri haldinn hátíðlegur. Furðulega margir vissu ekki að við hefðum fengið fullveldi þennan dag, en það sem var kannski verra var það að þeir sem þó vissu það höfðu litla hugmynd um hvaða ár það hefði gerst. Einn giskaði á 1954 og einhverjir héldu að það hefði gerst 1944. Svo hlær maður að fólkinu sem kemur í þáttinn hjá Jay Leno og veit ekkert í sinn haus.
Reyndar þarf þetta svo sem ekkert að koma á óvart miðað við spurninguna sem einn sögukennari fékk frá bekknum sínum í unglingadeild: "Notuðu menn byssur í seinni heimsstyrjöldinni?" Heimild: Davíð Ásgrímsson. Sögukennari. Varmalandi. 2003.

Fleira var það ekki í bili.
Með kveðju, Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com